Mynda/bóka vinnsla
- Linda♥
- Jul 9, 2015
- 1 min read
Já.... það er orðið langt síðan við blogguðum seinast, enda brjálað að gera í bókavinnslu. Við erum að vinna í bókinni núna og erum búnar að vera að því seinustu daga. Allar myndir sem fara í bókina eru ákveðnar og unnar, búið er að fara yfir nokkra af textunum sem við erum búnar að skrifa og það er allt að smella saman. Þetta er 3 síðasta vikan í vinnuni og það er ekki mikill tími eftir. Við nýtum hvern tíma sem við höfum til að vinna í bókinni, því við erum alltaf að skiptast á skoðunum og að reyna að komast að niðurstöðu. Við fengum mikinn innblástur í fyrradag frá vinkonu okkar henni Ólöfu, hún hjálpaði okkur mikið að komast uppúr rit/hugmynda stíflunni sem við vorum komnar í. Hún ætlar líka að teikna coverið á bókina okkar, jibbí! . Við erum svo hrikalega þakklátar að hún vilji slást í för með okkur.
Sýningin fyrir skapandi sumarstörf verður fimmtudaginn 23.júlí og verðum við með smá horn í molanum. Þar ætlum við að kynna bókina okkar og bjóða fólki að koma og sjá afrakstur sumarsins. Það verður sjúklega skemmtileg, við bíðum spenntar eftir því að fá bókina í hendurnar og kynna hana á leikskólum kópavogs.
Takk fyrir lesturinn :D Kveðja Linda♥
Commentaires