top of page

SEARCH BY TAGS: 

RECENT POSTS: 

FOLLOW ME:

  • Facebook Clean Grey
  • Twitter Clean Grey
  • Instagram Clean Grey

Mánudagar

  • Linda♥
  • Jun 15, 2015
  • 2 min read

Mánudagur komin aftur! Vikurnar eru svo fljótar að líða þegar það er gaman. Tíminn er ekki að vinna með okkur í þessu, manni langar helst að stoppa tíman og ná að njóta þess meira að vera vinna í svona skapandi og skemmtilegu verkefni. Mánudagarnir eru góðir dagar til að líta til baka og skoða ferðalagið sem við erum búnar að taka. Sjá alla framfarirnar sem orðið hafa í okkur og í verkefninu. Við notum mánudaga yfirleitt í að koma okkur af stað með vikuna og skipuleggja okkur.

Leikskólarnir sem við erum búnar að fara á eru æðislegir. Það er svo margt flott sem þessir krakkar eru að gera. Það er allskonar list í gangi hvort sem það er söngur, dans, myndlist, skúlptúrar eða annað. Ég hlakka til að setja þetta í bókina okkar og sýna þessa yndislegu krakka í uppbyggjandi og skapandi umhverfi.

Persónulega hefur þetta gefið mér rosalega mikið. Ég hef aldrei litið á mig sem listræna manneskju, ég hef alltaf verið í raungreinum og haldið mér bara þar. Þetta er því mikil breyting fyrir mig, engin hvítur sloppur eða krufningasett haha :)

Sonja ýtti mér í djúpu laugina með því að fá mig með í þetta verkefni. Ég hef samt aldrei verið jafn ánægð með neina ákvörðun. Þetta hefur opnað nýja vídd fyrir mér, inní skapandi heiminn þar sem ég hef ekki fengið mikið tækifæri á að rækta þessa hlið á mér. Núna er ég uppfull af hugmyndum sem mig langar að framkvæma og hef líka meira sjálfstraust í því að skapa einhvað og sýna það, ekki að ég mundi gera það samt haha, eða kanski, ég veit það ekki haha :D

Gleðilegan Mánudag

Kveðja Linda♥

11419900_10153445624313385_724256625_n.jpg


 
 
 

Commenti


bottom of page