Kópahvoll
- sonja
- Jun 11, 2015
- 1 min read
í dag heimsóttum við leikskólan Kópahvol. Það er svo frábært að sjá hvað það er mikill munur á leikskólum. Þessi leikskóli var akkurat 45 ára núna um daginn og er með þeim elstu í Kópavogi. Við stoppuðum stutt en náðum frábærum myndum af krökkunum úti í rigningunni.

Við erum búnar að vera á fullu að fara yfir allar myndirnar sem við erum nú þegar komnar með. Við erum að reyna að vera pínu skipulagðar þar sem við höfum bara seinustu þrjár vikurnar til að byrja á bókinni, klára hana og prenta hana. Ekkert stress samt, við linda erum bestar undir pressu eða það myndi ég allavegana segja.

Við erum líka byrjaðar að ákveða hvernig 17. júní verður hjá okkur. Við ásamt þrem öðrum snillingum úr molanum verðum með smá(eða risa) gjörning á listatúni. Við erum ekki alveg búnar negla þetta samt, Fáið update hérna á blogginu.
takk og bæ :)
Commentaires