top of page

SEARCH BY TAGS: 

RECENT POSTS: 

FOLLOW ME:

  • Facebook Clean Grey
  • Twitter Clean Grey
  • Instagram Clean Grey

17 júní, pælingar og núpur!

  • sonja
  • Jun 18, 2015
  • 1 min read

Favorites - 1 of 5.jpg

Þið affsakaið þetta blogg-leysi, það er búið að vera svolið að gera hjá okkur þessa viku. Á mánudaginn var fundað vegna 17. júní, vorum aðeins fram á kvöld með hópnum. á þriðjudaginn skelltum við okkur á álfatún og fengum að vera fluga á vegg þar.

Svo kom miðvikudagurinn 17. júní. við vorum 5 saman með gjörning á listatúni við skapalón, vá hvað það var gaman að sjá afreksturinn eftir að hafa planað eitthvað í næstum 2 vikur! Það var pínu óþæginlegt að vera að fíflast þarna allur í málingu fyrir framan skrúðgönguna, en þetta var sjúklega gaman!

Favorites - 2 of 5.jpg

Í dag fengum við að kíkja aðeins við á Núp. Þegar við mættum voru krakkarnir í útivist og skelltum við okkur bara með í það. Rosalega flott hvernig kennararnir eru búnir að setja upp svona drullumallseldhús eða hlutverkakrók fyrir krakkana, sem var uppfullt af allskonar skóflum og fötum sem krakkarnir gátu sullað með. Við sáum líka að þau væru að rækta allskonar grænmeti. Það er alveg frábært hvað kennararnir á leikskólunum ,sem við erum búnar að fara á, taka vel á móti manni. Ekki að það komi eitthvað á óvart en við erum svo þakklátar fyrir þetta allt saman.

Í næstu viku förum við á rjúpnahæð og vonandi einhverja fleiri.

Favorites - 1 of 3.jpg

takk og bæ. (stafsettningavillur eru persónueinkenni og enginn sagði eitt við halldór laxnes.)


 
 
 

Comments


bottom of page