Urðarhóll
- Linda♥
- Jun 10, 2015
- 1 min read
Þessi börn eru yndisleg!! Við fórum á leikskólan Urðarhól í dag og það var svo vel tekið á móti okkur og gaman að koma til þeirra. Við fengum að vera með í söng/dans-stundinni, taka þátt í að spila og í ævintýralandinu. Við náðum ótrúlega góðum myndum og viðtölin voru svo skemmtileg. Við fengum að kynnast ótrúlega skemmtilegum og skapandi krökkum sem eiga framtíðina fyrir sér í list og sköpun. Það er svo gaman að fá að kíkja í kollinn á þessu börnum og sjá hvað þau eru að hugsa og pæla. Mig langar að gefa smá sýnishorn af viðtali sem við tókum í dag við einn snilling
Stelpa 5.ára Hvað eru draumar? Svar: "Ég er alltaf með litla bángsadúkku undir koddanum og þá dreymir mig alltaf vel."
Þetta sýnir örlítið hversu einlæg og yndisleg börnin eru.
Við förum síðan á Kópahvoll á morgun og Núp á fimmtudaginn næsta og okkur hlakkar mikið til að kynnast fleiri ungum snillingum. Við höfum líka ákveðið að vera með smá gjörning og kynningu á verkefninu á 17.júní og erum að byrja að vinna í því, við setjum kanski inn fleiri upplýsingar um það seinna.
Takk fyrir okkur Urðarhóll Linda♥



Comments