top of page

SEARCH BY TAGS: 

RECENT POSTS: 

FOLLOW ME:

  • Facebook Clean Grey
  • Twitter Clean Grey
  • Instagram Clean Grey

Dagur númer 2!

  • Sonja
  • Jun 2, 2015
  • 1 min read

Skemmtilegasta vinna í heiminum.

Þá erum við búnar að búa okkur til nýja heimasíðu, youtube channel, instagram og auðvitað facebook síðu. Í vikunni munum við kannski henda í eitt Vlog (videoblogg) sem verður sett hér inn og inná youtube channel-ið okkar, spennó!

Gærdagurinn var æði, við settum upp "skrifstofuna" okkar, sem við elskum. Seinnipartinn skelltum við okkar á leikskólann Urðarhól og leikskólann Kópahvol og kynntum okkur, hver veit nema við fáum að kíkja þangað í sumar.

Samtals erum við búnar að fara og kynna okkur fyrir 5 leikskólum en erum bara komnar með svar frá einum og munum líklegast byrja þar, munum tilkynna það hér á blogginu hvar við byrjum þegar að því kemur :).

EN í dag ætlum við að vinna aðeins í heimasíðunni okkar, svara tölvupóstum og almennt stúss, kannski byrja að senda fyrirspurnir á prentsmiðjur?

Sjáumst á morgun :) -sonja

IMG_1112.JPG

IMG_1107.JPG

 
 
 

Comments


bottom of page