Fyrsta Myndatakan
- Linda♥
- Jun 4, 2015
- 1 min read
- Ánægulegt - Skapandi - Yndislegt - Gaman - Magnað - Krúttleg - Vinaleg - Gefandi -
Þetta eru lýsingarorðin sem lýsa deginum í dag. Við fórum nefnilega í leikskólan Austurkór í dag og það var sjúklega skemmtilegt!. Austurkór er leikskólinn sem ég var að vinna á í fyrra og þekkti því starfsmenn og krakkana sem gerði ferlið miklu auðveldara og skemmtilegra. Það er fínt að byrja þetta ferli á stað sem maður þekkir og líður vel í umhverfinu. Það gefur okkur líka meira sjálfstraust þegar við förum á hina leikskólana.
Krakkarnir voru náttúrulega bara yndisleg. Við fengum að fylgjast með þeim leika sér úti að róla, í sandkassanum og í klifurgrindinni. Þar voru litagleði í pollagöllum og úlpum allsráðandi og við hittum gröfugengið og sáum sandkökur o.fl. Við fengum líka að vera með í að mála sem var ótrúlega gaman. Þar náðum við flottum myndum af listaverkum og tásum í öllum regnbogans litum. Flottu krakkarnir máluðu svo flottar myndir fyrir okkur og við hlökkum til að koma aftur.
Ég við bara þakka fyrir alla jákvæðnina og allt þetta góða viðmót sem við höfum fengið gagnvart verkefninu okkar.
Og auðvitað takk kærlega Austurkór hlakka til að sjá ykkur aftur!! :D
Kv. Linda♥



コメント