Rjúpnahæð
- Linda♥
- Jun 23, 2015
- 1 min read
Í dag fórum við á leikskólann Rjúpnasali, hann er staðsettur í salahverfi. Þar fengum við að taka þátt í skemmtilegu starfi krakkanna. Við fórum með þeim í samverustund þar sem veðurfræðingur dagsins sagði okkur frá veðrinu og hvernig við áttum að klæða okkur fyrir útiveruna.
Við fórum einnig í sumarskólann sem krakkarnir eru í á sumrin. Þar er hægt er að velja sér stöð til að vera á. Þetta fer allt fram úti á skólalóðinni og stöðvarnar sem eru í boði eru smíðastöð, hlutverkaleikur, íþróttir, skapandi stöð og margt fleira sem var mjög spennandi.
Við eignuðumst 2 vinkonur sem voru hrikalega duglegar að sýna okkur leiskólann sinn og allt það skemmtilega sem var að gerast. Okkur fannst standa uppúr hvað eldri krakkarnir voru duglegir að hjálpa þeim yngri og leyfa þeim að vera með í leikjum og öðru sem þau voru að gera. Við viljum bara þakka Rjúpnahæð fyrir góðar móttökur :D
Kveðja Linda♥

Slappað af í rólunni.

Gott að eiga góðan félaga.
Comments