föstudagsmánudagsblogg!
- sonja
- Jun 8, 2015
- 1 min read
Þið afsakið að það kom ekkert blogg á föstudagin, gleymdum okkur smá!
en á föstudaginn seinasta fórum við aftur á austurkór.
Byrjuðum á því að spurja nokkra krakka spurninga sem tengjast ímyndunarafli, eða spurninga sem ættu að 'leyfa' börnum að hugsa út fyrir kassan. Sem var ótrúlega skemmtilegt því maður fékk bæði krakka sem svöruðu ekki ef þau vissi ekki nákvæmlega svarið og krakka sem svöruðu því sem þeim langaði. Svolítið einsog 'börnin hans hemma' í gamla daga!
Þessar spurningar og svör munu birtast í bókinni okkar.
Eftir spurninga stundina fengum við 4 krakka til að mála tvo boli fyrir okkur sem við ætlum að mynda og verða settir í bókina, hver veit nema við klæðumst þeim? Það var geðveikt að fylgjast með þeim mála, svona hreint ímindunarafl er magnað! Af þessum fjórum krökkum var einn algjör frumkvöðull, hann fékk hina krakkana til að þora að opna sig og byrja bara.


Í dag mættum við á mánudags fundinn plönuðum komandi viku og byrjuðum að plana 17. júní! Við tókum okkur nokkrar saman og ætlum að vera með smá gjörning, sjúklega kúl. Kemur allt í ljós hvað við ætlum að gera, þurftum allavegana að kaupa okkur hárkollur, ég fékk bláa.
Commenti