DAGUR NÚMER 3!
- sonja
- Jun 3, 2015
- 2 min read
pælingablogg eða bara svona notetoself blogg.

í dag þruftum við linda að skila af okkur myndum fyrir plaggatið sem molinn býr til, til að kynna verkefnin okkar. Ekkert smá erfitt að vera ekki hinumeginn við myndavélina en þetta var nú ekkert mál. Ákváðum að vera ekkert of alvarlegar þar sem verkefnið okkar tengist nú ímindunarafli.
Við erum búnar að vera duglegar að setja myndir á instagramið okkar og þið getið fylgst með því hérna inná ,undir myndir. Við ætlum að reyna að setja nokkrar myndir á dag í allt sumar kannski tökum við þær saman og setjum þær í bókina? kannski. Það er svo mikið sem okkur langar að gera í sambandi við þetta verkefni, held það sé þessvegna erfitt að útskýra nákvæmlega hvað við séum að gera eða erfitt að skilja það 100%. Þegar við linda ákváðum að sækja um þá tókum við hugmynda-fund þar sem við settumst niður og töluðum um hluti sem okkur langaði að gera. Ég get sagt að þessi fundur var ekki langur, því við vissum alveg hvað hin manneskjan var að hugsa. Það er kostur að hafa verið bestu vinkonur svona lengi, en kannski ekki þegar það kemur af því að við þurfum að útskýra þetta.
Seinustu 2 dagar eru búnir að vera svo skemmtilegir. Mér finnst magnað að það sé til eitthvað eins og skapandi sumarstörf. Öll 16 verkefnin sem eru að taka þátt í sumar eru svo töff! Það kom mér á óvart hvað hefur góð áhrif á mann að vinna í kringum svona skapandi krakka, það smitar svo út frá sér. Þetta krefst samt aga, að vera svona sinn eiginn herra, sérstaklega þegar maður er b-manneskja! Á mánudögum þurfum við að skila inn tímaskýslu fyrir komandi viku þar sem við skrifum hvar við verðum hvern dag, sem er ótrúlega þæginlegt, maður getur skipulagt sig svo miklu betur. Svo er ekki slæmt að fá svona yndislega yfirmenn eins og staffið hérna í molanum sem halda svo vel utan um allt! (vonaþauséuaðlesaþetta.djók ).
Ég get ekki hætt að segja hversu skemmtilegt það er í vinnuni! Þetta er orðið vandræðalegt.
Á morgun förum við á fyrsta leikskólan! Austurkór!
Við ætlum að fá að vera með í útiveru og/eða listasmiðunni. Vona að ég nái einhverjum góðum myndum.


留言